Jack Bauer dagsins

Everytime Jack Bauer smiles, a terrorist loses his balls

Auglýsing

Könnun

Hver vinnur HM í sumar?

Gagnasafn

Mývatn

04. júní 2006 klukkan 22:03
Góðan daginn allir...hvar á ég að byrja? svoldið langt síðan maður hefur bloggað þannig að ég ætti nú að geta sagt ykkur frá einhverju núna...Allaveganna gærdagurinn, sem var alveg magnaður byrjaði á því að ég vaknaði klukkan 10 og ég og Palli ákváðum að skella okkur einn rúnt um mývatn og nágrenni í svokallaðan ljósmyndarúnt þar sem að við skoðuðum helling af mjög flottum stöðum eins og t.d. Goðafoss, hversvæðið, Mývatn og Dimmuborgir. Síðan gengum við uppá Hverfjall og er klikkað útsýni þar uppi...tók í heildina einhverjar 300 myndir sem var bara ágætt. síðan á bakaleiðinni fyrir algjöra tilviljun rakst ég á mann í souvenir versluninni hjá sel hótel mývatn sem er maðurinn frænku minnar og búa þau í Kanada...allaveganna þá á hann byggingafyrirtæki í Kanada og er að smíða einhverja sumarbústaði í Mývatnssveit og hann var að bjóða mér að koma að vinna hjá sér í Kanada þegar ég er búinn að klára að læra smiðinn sem hljómar bara mjög spennandi.og sagði hann mér að hann væri að taka að sér verkefni útum allan heim, t.d. þá eru þeir að fara til Jamaíka í 2.mán í haust að byggja eitthvað hús og síðan til spánar eftir það...allaveganna verður maður að fara að heimsækja þau því þau eiga 500 fermetra stórt einbýlishús sem stendur við risastórt vatn með einkabryggju og spýttbát og jet-ski og öllum pakkanum.hann var einmitt að segja mér í gær að hann gæti ekki beðið eftir að komast heim til Kanada því hann var að kaupa sér einhvern 350 hö spíttbát sem biði eftir honum á vatninu...en nóg af þessu...ég og mín ástkæra Hulda skelltum okkur svo í gærkvöldi í baðvötnin við mývatn og var það alveg magnað...geggjað veður og ekki margir þar þannig að þetta var mjög notalegt allt saman. komum síðan við í dimmuborgum á leiðinni heim og gengum þar um í góða veðrinu og síðan stoppuðum við hjá Goðafoss áður en við komum til Akureyrar aftur...Erum síðan núna að fara til ólafsfjarðar í mat til mömmu og get ég ekki beðið því mamma klikkar aldrei á eldamennskunni....ætli þetta sé ekki komið gott í bili og eins gott að þið kvittið fyrir komuna;) tjá
Ingi Valur Davíđsson
13 athugasemdir